Í dag hófst Lífshlaupið, heilsu og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, sem höfðar til allra aldurshópa.

Í Lífshlaupinu eru landsmenn hvattir til þess að huga að hreyfingu í daglegu lífi og auka hana eins og hægt er, þ.e. í frítíma, vinnu, í skóla og við val á ferðamáta. Samkvæmt landlækni er börnum og unglingum ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag. Nánari upplýsingar um ráðleggingar um hreyfingu má finna á síðu Embætti landlæknis.

Regluleg hreyfing hefur löngu sannað gildi sitt. Þeir sem hreyfa sig reglulega eru síður líklegir til að fá kransæðasjúkdóm, heilablóðfall, sýkursýki 2, sumar tegundir krabbameina, stoðkerfisvandamál og geðröskun. Þannig eykur regluleg hreyfing líkurnar á að fólk lifi lengur og við betri lífsgæði en ella.

Í febrúar stendur Lífshlaupið fyrir tveggja vikna grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri, tveggja vikna framhaldsskólakeppni fyrir 16 ára og eldri og þriggja vikna vinnustaðakeppni. Svo geta allir tekið þátt í einstaklingskeppni og skráð niður sína daglegu hreyfingu.

Skrá má alla hreyfingu niður ef hún nær minnst 30 mínútum samtals á dag hjá fullorðnum og minnst 60 mínútum samtals á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má skipta upp í nokkur styttri tímabil yfir daginn, s.s. 10 til 15 mín í senn.

Vinnustaðir, skólar og einstaklingar eru hvattir til að taka þátt og nota þannig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig daglega.

Einkunnarorð Lífshlaupsins eru: Þín heilsa – Þín skemmtun

lógókall