Allir sem fóru eitthvað á skíði á níunda áratugnum hljóta að tengja við þessi gleraugu sem nú eru komin aftur á markaðinn í endurbættri mynd.  Julbo Vermont Classic byggja á hinum margfrægu Julbo gleraugum sem allir sem vildu vera töff í útivist, eða bara á diskótekinu, báru á nefinu hér á árum áður.  Gleraugun eru heldur ekkert slor. Þau þola mjög vel bæði hita og kulda. Algjörlega upplögð í klifrið, gönguna, á skíðin, í hvaða veðri sem er. Þau fást í Auganu í Kringlunni.